Einstök börn bolur 2024 ásamt fleirri nýjum vörum

EINSTÖK BÖRN BOLURINN 2024 ⭐️ Forsalan er hafin á einstokborn.is 🩵

Bolurinn í ár er einstakur að öllu leiti, hannaður af einstakri mömmu og skreyttur því sem er okkur mikilvægast 🩷

Litirnir eru alþjóðlegir litir sjaldgæfra sjúkdóma og heilkenna - blár, bleikur, fjólublár og grænn 🩷

Fingrafarið merkir okkur öll, bæði okkur einstöku og ykkur sem setjið ykkar fingrafar á okkar verkefni 💚

Fiðrildið er til minningar um þau sem eru farin en eru alltaf með okkur í hjartanu🩵

Drekinn er svo tákn einstakar gleði og hamingju 💜

Stefnt er á að afhenda bolina 15.08 ✨