P-merki og P-stæði

Hreyfihamlaðir einstaklingar eiga rétt á P-merki, sem er skírteini sem fatlaðir setja við framrúðuna í bifreið sinni og gefur það þeim leyfi til að leggja í sérmerkt stæði fyrir fatlað fólk. Slík stæði eiga að vera við þá staði sem fólk sækir þjónustu, svo sem verslanir og opinberar stofnanir en einnig geta einstaklingar sótt um að fá slík stæði við heimili.

P-merki

Hvernig sæki ég um P-merki?

Stæðiskortið (P-merkið) er gefið út af sýslumannsembætti á því svæði sem þú býrð á. P-merkið er gefið út á persónu en ekki bílnúmer og er einungis heimilt að gefa út eitt kort á hvern einstakling.

Til að sækja um P-merkið þarf að fylla út umsókn á vef viðkomandi sýslumanns í gegnum vefinn island.is

Umsókninni þarf að fylgja:

  1. Læknisvottorð um hreyfigetu og sendir læknirinn það beint á næsta sýslumannsembætti.
  2. Þá þarf að koma hefðbundinni passamynd af umsækjanda til sýslumannsins - fyrr verður stæðismerkið ekki unnið.
  3. Þá þarf að mæta á sýslumannsskrifstofuna og gefa undirritunarsýnishorn þess sem stæðismerkið er stílað á.
  4. Þá má sækja stæðismerkið nokkrum dögum síðar eða láta póstsenda það heim til umsækjandans.

Ef foreldri/forráðamaður sækir um P-merki fyrir fatlað barn, þá á mynd af barninu að fylgja með umsókninni. Ef viðkomandi getur ekki gefið rithandarsýnishorn er því sleppt.

Stofnun eða heimili þar sem dvelja hreyfihamlaðir einstaklingar getur sótt um sameiginlegt stæðis­kort fyrir bifreið í sinni eigu til flutnings fyrir hreyfihamlaða einstaklinga. Skilyrði fyrir útgáfu slíks korts er að það sé eingöngu notað við slíkan flutning en ekki við annars konar nýtingu bifreiðar­innar. Læknisfræðileg viðmið, sbr. 2. mgr. 3. gr., skulu lögð til grundvallar við mat á beiðni og afgreiðslu. Sjá nánar Reglugerð nr. 1130/2016 um útgáfu og notkun stæðiskorts fyrir hreyfihamlaða.

Það kostar ekkert að fá P-stæðiskort og það er yfirleitt tilbúið eftir 2-3 daga eftir að öll gögn hafa borist til sýslumanns og þarf þá að sækja það eða láta senda í pósti á herimili viðkomandi.
Stæðiskortið er gefið út í tiltekinn tíma, að hámarki 5 ár en ekki skemur en 2 ár.  Ef þörf er tímabundin má gefa út stæðiskort í skemmri tíma (jafnvel nokkra mánuði en það þarf að koma fram í læknisvottorði að þörfin sé tímabundin). Ef vetrarfærð veldur hreyfihömlun sérstaklega má gefa út stæðiskort er gildir fyrir tímabilið frá 15. október til 1. maí.

Endurnýjun P-merkis

Þegar sótt er um endurnýjun P-merkis þarf að skila inn sömu gögnum og þegar sótt er um í fyrsta skipti.

Hvert fer ég með umsókn um P-merki?

Einstaklingar sem búsettir eru á höfuðborgarsvæðinu fara með umsóknina á skrifstofu  sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu að Hlíðarsmára 1, 201 Kópavogi. Einstaklingar búsettir í öðrum sveitarfélögum sækja um hjá sýslumanni í sinni heimabyggð.

Hvernig nota ég P-merkið?

Hreyfihamlaðir einstaklingar eiga rétt á P-merki sem gefur þeim leyfi til að leggja í sérmerkt stæði fyrir fatlað fólk. Tryggja þarf að framhlið merkisins og gildistími sjáist vel í framrúðu bílsins, annars er mögulegt að gefin sé út sekt ef kortið er skoðað. 

Hreyfihamlaðir einstaklingar sem ekki eru með bílpróf geta einnig átt rétt á P-merki, sjá grein nr. 2 í reglugerð um útgáfu og notkun P-merkja.

Fólk með P-merki hefur leyfi til að leggja í stæði þar sem gjaldskylda er (stöðumælir) án þess að greiða í stöðumælinn, þetta á þó ekki við um bílastæðahús. Heimildin er veitt skv. Reglugerð um útgáfu og notkun stæðiskorta fyrir hreyfihamlaða.

Plastvasa utan um P-merkið sem hægt er að festa í framrúðu bílsins, má fá í Þjónustuveri Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12 - 14.

Öryrkjabandalagið hefur gefið út leiðbeiningar um Notkun stæðiskorta fyrir hreyfihamlað fólk.

Á ferð erlendis

Sýslumenn gefa út P-merki Evrópusambandsins sem gilda innan Evrópusambandsríkja og einnig víðar. Í umsókninni um P-merki þarf að merkja sérstaklega við hvort að þörf sé á að nota stæðiskortið í öðru EES-ríki.

Innan Bandaríkjanna er misjafnt eftir fylkjum hvort sækja þarf sérstaklega um P-merki eða hvort tekin séu gild P-merki annarra ríkja. Í Bandaríkjunum sér Department of Motor Vehicles um útgáfu P-merkja. Í Florida þarf að sækja sérstaklega um skammtíma P-merki.

Hægt er að kynna sér upplýsingar um notkun stæðiskort fyrir fatlaða ferðamenn eftir löndum á vefsíðu FIA.

Erlendir ferðamenn

Erlendir ferðamenn sem hafa fengið útgefið P-merki í sínu heimalandi geta notað það á Íslandi. Merkin þurfa að vera vel sýnileg í framrúðu bílsins. Sjá einnig nánar upplýsingar fyrir erlenda ferðamenn með P-merki  á vefsíðu FIA.

P-stæði

Bílastæði hreyfihamlaðra

Á  Wheelmap má finna bílastæði fyrir hreyfihamlað fólk.  Á Wheelmap skrá notendur sjálfir inn upplýsingar um aðgengilega staði fyrir hjólastóla. 

Almennt P-stæði fyrir íbúa og gesti 

Í Reykjavík er sótt um að fá P-merkt stæði sett upp við íbúðarhúsnæði með því að senda erindi til Þjónustumiðstöðvar Háaleitis- og Laugardals. Þegar heimild hefur verið fengin setur bílastæðasjóður merkið upp. Sé um fjölbýli að ræða þarf samþykki húsfélags. Stofnanir hafa samband við samgöngustjóra hjá Reykjavíkurborg til þess að fá P-merkt stæði hjá sér. 

Sérmerkt P-stæði:

Ef íbúi í fjölbýlishúsi sem er með  P-stæðiskort þarf að hafa sérmerkt P-stæði sem hann einn hefur afnot af (merkt bílnúmeri). Þá í fyrsta lagi þarf samþykki húsfélagsins til að merkja eitt stæðið (ef hver íbúi er ekki með eigið stæði) og er viðmiðið að húsfélagið borgi uppsetningu á stæðinu en viðkomandi borgi fyrir sjálft skiltið, enda sé það sérmerkt með bílnúmeri og hann getur flutt það með sér ef svo vill til. Það eru vinnureglur Reykjavíkurborgar. 

Síðan er almenn krafa að við fjölbýlishús sé tiltekinn fjöldi merktra stæða fyrir fatlaða við húsið. Þau stæði eru almennt ekki ætluð fyrir fatlaða íbúa að leggja í, heldur eru þau ætluð fyrir fatlaða gesti og sjúkrabifreiðar.
  

Önnur sveitarfélög:

Íbúðarhúsnæði á einkalóð: Íbúi/-ar setur sjálfur upp merkið og greiðir kostnað við það. 

Eins og nefnt hefur verið, að ef um fjölbýli er að ræða þarf samþykki húsfélagsfundar fyrir því að merkið verði sett upp og húsfélög greiða kostnað. Ef um lóð viðkomandi sveitarfélags ræðir er yfirleitt haft samband við skipulags-/framkvæmdadeildir-/gatnadeild þess og starfsmenn bæjarins sjá um uppsetninguna. 

Breytingar vegna bílastæða og sérmerkingar:

Á vef Vegagerðarinnar má sjá merkingar sem notaðar eru til að merkja bifreiðastæði og sérstaka umferð fyrir fatlað fólk http://www.vegagerdin.is/SthbThjon.nsf/2d1e761d5db9cd840025702a00731850/dffa96b300db4faa0025779700559a4a/$FILE/D_merki.pdf.  Merkið sem notað er fyrir bifreiðastæði fatlaða flokkast sem  J11.11 en einnig er hægt að nota merki  D01.21 og merki  D11.11 er notað við leiðir sem eru sérstaklega ætlaðar fyrir umferð fatlaðra.

Merkingar fyrir sérmerkt bílastæði:

Fyrirtækið Merking býr til skilti fyrir sérmerkt bílastæði. Kostnaður getur verið misjafn og fer eftir stærð skiltisins.

Bílastæðamálun:

Fyrirtækið B.S Verktakar býður fyrirtækjum, bæjarfélögum, húsfélögum og öðrum upp á málun bílastæða og aðrar skyldar merkingar svo sem stæði fatlaðra.

Fyrirtækið GSG býður fyrirtækjum, bæjarfélögum, húsfélögum og öðrum upp á málun bílastæða fyrir fatlaða. 

Fyrirtækið Bilastaedamalun.is býður upp á bílastæðamálun víða um land.

Stofnkostnaður við að mála eitt P-stæði getur numið um 50.000 kr. (verð breytast - upplýsingar frá 2017).

 

Ef þú veist um fleiri fyrirtæki sem sinna bílastæðamálun eða gera skilti fyrir sérmerkt bílastæði þá mátt þú vinsamlegast láta okkur vita.  Hægt er að senda okkur skilaboð á facebook síðu okkar eða hafa samband hér

Reglugerð

Í byggingarreglugerð nr. 112/2012 er tilgreint hvernig bílastæði hreyfihamlaðra skulu vera. Á vef Mannvirkjastofnunar má sjá leiðbeiningar  sem unnar eru út frá reglugerðinni. Hér fyrir neðan eru helstu atriðin í leiðbeiningunum dregin út.  Til að fá nánari upplýsingar er nauðsynlegt að skoða leiðbeiningablöðin.

  • Bílastæði hreyfihamlaðra skulu vera sérmerkt á yfirborði og einnig með lóðréttu skilti.  Þau skulu vera sem næst aðalinngangi bygginga, ekki fjær en u.þ.b. 25m. Þar sem því verður komið við skal stæðum fyrir hreyfihamlaða komið fyrir á svæðum sem eru upphækkuð í gangstéttarhæð og tengd gangstéttum.
  • Hindrunarlaus leið skal vera frá bílastæðum hreyfihamlaðra að aðalinngangi byggingar.
  • Bílastæði hreyfihamlaðra skulu vera 3,8 m x 5,0 m að stærð.  Fimmta hvert stæði fyrir hreyfihamlaða skal vera 4,5 m x 8,0 m að stærð (fyrir ferðaþjónustubíla með lyftu að aftan). Þó skal aldrei vera færri en eitt slíkt við hverja byggingu.
  • Í leiðbeiningunum má einnig sjá töflur um lágmarksfjölda bílastæða fyrir hreyfihamlaða við íbúðar/-og samkomuhús sem dæmi.