Karfan er tóm.
- Félagið
- Réttindi
- Samantekt fyrir foreldra
- Réttindamál
- Hjálpartæki
- Fjármál
- Húsnæði
- Lög og lagaleg málefni
- Vefverslun
- Styrkja félagið
- Tillögur
- Skráning á viðburði
- Greiningar innan félags
Hér eru ýmsar gagnlegar upplýsingar sem varða kosningar, meðal annars ef kjósandi kemst ekki á kjörstað eða þarf aðstoð við áritun kjörseðils.
Á Kosningavef Stjórnarráðsins má finna upplýsingar um allar opinberar kosningar, þ.e. alþingiskosningar, sveitarstjórnarkosningar, forsetakosningar eða þjóðaratkvæðagreiðslur. Sveitarfélögin auglýsa sérstaklega kjörstaði í hverju kjördæmi.
Samkvæmt kosningalögum nr, 24/2000 63. gr. geta kjósendur sem eru ekki færir um að árita kjörseðla sjálfir fengið heimild kjörstjóra til að fá fulltrúa, sem kjósandinn hefur valið sjálfur, til að aðstoða sig við atkvæðagreiðsluna.
Þegar kjósandi kemur á kjörstað skal hann greina frá því að hann óski eftir því að fulltrúi hans aðstoði hann við kosninguna. Fulltrúi kjósandans skal víkja frá á meðan kjörstjóri tekur ákvörðun um að verða við beiðni kjósandans eða hafna henni.
Ef kjósandinn getur ekki sjálfur sagt með skýrum hætti að hann óski eftir aðstoð fulltrúa sem hann hefur sjálfur valið, getur kjörstjóri leyft fulltrúa kjósandans að aðstoða kjósandann ef kjörstjóri fær vottorð réttindagæslumanns sem staðfestir að kjósandi hafi valið sjálfur tiltekinn fulltrúa til að aðstoða hann við atkvæðagreiðsluna.
Fulltrúi eins kjósanda getur ekki verið fulltrúi annarra kjósenda í sömu kosningum. Fulltrúinn þarf að skrifa undir þagnarheit.
Eyðublað: Þagnarheit fulltrúa sem kjósandi velur sjálfur vegna atkvæðagreiðslu utan kjörfundar.
Kjósendur sem komast ekki frá dvalarstað sínum til að kjósa, sökum sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar geta sótt um að fá að greiða atkvæði sitt í heimahúsi. Sækja þarf um það með umsóknareyðublaði en umsókn þarf að hafa borist kjörstjóra fyrir kl. 16 fjórum dögum fyrir kjördag.
Flest framboð bjóða upp á keyrslu á kjörstað. Best er að hafa samband við kosningaskrifstofu hvers frambjóðanda eða stjórnmálaflokks í kjördæmi viðkomandi til að óska eftir keyrslu.
Athugið að efnið hér fyrir ofan er fengið af vef viðkomandi stofnana.