Karfan er tóm.
- Félagið
- Réttindi
- Samantekt fyrir foreldra
- Réttindamál
- Hjálpartæki
- Fjármál
- Húsnæði
- Lög og lagaleg málefni
- Vefverslun
- Styrkja félagið
- Tillögur
- Skráning á viðburði
- Greiningar innan félags
Ýmis aðstoð er í boði fyrir þá sem eiga erfitt með að láta enda ná saman fjárhagslega.
Hér fyrir neðan eru taldar upp nokkrar stofnanir og fyrirtæki sem geta veitt aðstoð.
Fjárhagsaðstoð sveitarfélaga er veitt samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga en hvert sveitarfélag setur sér reglur um framkvæmdina. Samband íslenskra sveitarfélaga greinir frá reglum um fjárhagsaðstoð og félagaslega ráðgjöf á vef sínum.
Fljótlegt er að finna sveitarfélögin á vef Sambands sveitarfélaganna. Bendlinum er rennt yfir Íslandskortið, smellt á viðkomandi landsvæði og nærmynd af því birtist með sveitarfélögunum. Þegar smellt er á sveitarfélag birtast allar upplýsingar um það neðan við nærmyndina.
Á vef umboðsmanns skuldara segir að hlutverk embættisins samkvæmt lögum sé að:
Á vef umboðsmanns er einnig ítarlegur fróðleikur um fjármál, t.d. um það hvernig hægt sé að forðast greiðsluvanda. Einnig er hægt að hala niður Exel skjali sem er þegar hannað fyrir heimilisbókhald. Það eina sem þarf að gera er að fylla út í skjalið. kunnáttu á Excel er krafist
Fjölskylduhjálp hefur það hlutverk að hjálpa öllum landsmönnum sem stríða við fátækt. Aðalstarfsemi Fjölskylduhjálparinnar felst í að aðstoða fátækt fólk með matvæli, lyf, hársnyrtingu, fatnað, ungbarnavörur og leikföng segir á vef hennar.
Úthlutun Fjölskylduhjálparinnar er í Iðufelli 14, Reykjavík og Baldursgötu 14, Reykjanesbæ. Fjölskylduhjálp Íslands hefur eitt netfang fyrir báða staði.
Fjölskylduhjálpin er með síðu á Facebook. Þar má fylgjast með starfseminni.
Hagsmunasamtök heimilanna voru stofnuð 15. janúar 2009 í þeim tilgangi að berjast fyrir almennri leiðréttingu lána og afnámi verðtryggingar eins og kemur fram á vefsíðu samtakanna.
Hjálparstarf kirkjunnar veitir bágstöddum um allt land aðstoð, árið um kring eins og kemur fram á vefsíðu hjálparstarfsins. Félagsráðgjafar og sjálfboðaliðar á vegum Hjálparstarfsins veita ráðgjöf og aðstoð eftir aðstæðum. Barnafjölskyldur geta fengið inneignarkort í matvöruverslunum en einstaklingum er vísað á aðrar stofnanir varðandi mat. Allir geta sótt um aðstoð við að leysa út lyf, fengið stuðning við skólagöngu og tómstundir barna, fatnað og fleira eftir aðstæðum. Hægt er að fá einstaklings- og fjölskylduráðgjöf, fjármálaráðgjöf og markþjálfun, allt ókeypis hjá reyndu fagfólki. Auk þess er hægt að sækja um sérstaka jólaaðstoð.
Athuga þarf að öllum umsóknum þurfa að fylgja gögn varðandi tekjur og gjöld umsækjanda.
Tekið er við umsóknum á miðvikudögum kl. 12-16 og úthlutun fer svo fram viku síðar. Föt eru afgreidd á þriðjudögum kl. 10-12.
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur úthlutar matvælum til fjölskyldna hvern miðvikudag kl. 13:00-15:00 að Hátúni 12. Úthlutun matar til einstaklinga er hvern þriðjudag kl. 12.00-14:00. Fatnaði og ýmsum smávörum er úthlutað fyrsta miðvikudag í hverjum mánuði. Nýfædd börn fá gjafapakka með fatnaði og öðrum nauðsynjum. Sérstök jólaúthlutun er fastur liður í starfseminni og hefur hún hin síðustu ár verið í samstarfi við Hjálparstarf kirkjunnar og Rauða kross Íslands. Veittir hafa verið fermingarstyrkir á hverju vori.
Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar er með matarúthlutanir fyrir jólin og er einnig mögulegt að fá matarúthlutun vegna ferminga og stundum eru matarúthlutanir fyrir páska.
Í sumum tilfellum er hægt að fresta greiðslu lána eða að frysta lánin:
Athugið að efni hér fyrir ofan er fengið af vef viðkomandi stofnana/fyrirtækja.