Dagur sjaldgæfra sjúkdóma 28.2.2017
- 179 stk.
- 01.03.2017
Farin var dagsferð til Legolands Billund DK þann 5 Maí 2017 . Tilefnið var 20 ára afmæli félagsins og fóru alls um 220 manns með sjálfboðaliðum í ferðina. Ferðin var í undirbúningin í 18 mánuði og tókst svakalega vel, félagið fékk stuðning góðra fyrirtækja í formi gjafa fyrir börnin og voru þar LÖÐUR - INNES -Íslandsbanki-í stóru hlutverki og kunnum við þeim einstakt þakklæti en um var að ræða frábæran bakpoka og buff frá LÖÐUR og afþreyingu í pokann frá Íslandsbanka liti og blöð og INNES gaf snarl á leiðinni fyrir börnin. Einnig spilaði ICELANDAIR og áhöfnin svakalega veigamikið hlutverk enda flugum við með þeim og áhöfnin þeirra var hreint út sagt frábær - vel skipulögð og unnu sitt starf vel. Icelandair og ISAVIA gáfu öllum léttan málsverð í ferðinni og börnin fengu öll " flugstjórahatt" sem gjörsamlega sló í gegn. En við vitum það svo sannalega að börnin lifa lengi á þessari einstöku ferð í Legoland enda var margt prófað - gert og haft gaman en myndirnar segja víst meira en mörg orð. TAKK ÖLL SEM að verkefninu komu - þetta hefði aldrei verið hægt án stuðningsaðila sjálfboðaliða og annara þeirra sem lögðu sig fram við að gera ferðina eins glæsilega og skemmtilega og hún varð. Einnig verðum við að senda sérstakegar þakklætiskveðjur til ljósmyndarans okkar hans Sigurðar Willam Brynjarsson - því án hans framlags undanfarin ár fyrir félagið og sérstaklega í þessari ferð þá ættum við bara ekki þessar fallegu myndir allar saman. En þið finnið hann á Facebook undir Sigurður William Photography.
Skoða myndir