Karfan er tóm.
Einstök börn hafa fengið aðild að samtökunum Sólblómið - tákni fólks með ósýnilega fötlun (e. Hidden Disabilities Sunflower). Samtökin eru víðfeðmt stuðningsnet af hagsmunasamtökum fólks með ósýnilega fötlun á heimsvísu sem vinna að auknum skilningi á ósýnilegri fötlun.
Einstök börn afhenda sólblómið eingöngu til félagsmanna sinna þar sem félagið hefur skuldbundið sig til þess að tryggja að sólblómabandið sé notað rétt og af þeim sem sannarlega þurfa á því að halda.
Skilmálar
Ég samþykki að Einstökum börnum sé heimilt að vinna persónuupplýsingar um mig og barn mitt/börn mín í samræmi við 10. gr. laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018. Gögn sem berast vegna umsóknar um félagsaðild að félagi Einstakra barna verða varðveitt og meðhöndluð í samræmi við persónuverndarlöggjöf og persónuverndarstefnu Einstakra barna.
Með því að smella á „Senda“ samþykki ég skilmála þessa og heimila starfsmönnum Einstakra barna að bera saman umsókn mína við félagatal.