Forsíða
Prenta
Senda fyrirspurn
Minnsta leturgerð
Miðstærð leturgerðar
Stærsta leturgerð
Leita
Myndir
Dagatal
S
M
Þ
M
F
F
L
29
30
31
1
2
3
4

5
6
7
8
9
10
11

12
13
14
15
16
17
18

19
20
21
22
23
24
25

26
27
28
29
30
1
2

3
4
5
6
7
8
9

  Skrifstofa Einstakra barna er til húsa að                       Háaleitisbraut  11-13 og er hún opin frá 13:00-17:00

alla þriðjudaga og fimmtudaga.

 

  Styrktarreikningur félagsins er:

  513-14-1012

  Kt. 570797-2639

Sala minningarkorta
Minningarkort Einstakra barna er hægt að panta með því að hringja í síma 699 2661 og 895 8661. Hægt er að velja um hvort greitt er með C gíróseðli eða með greiðslu-korti. Lágmarksgjald á minningarkorti er 1000 kr. Panta má kort hér.
 
Fyrirspurn
Hafir þú fyrirspurn til félagsins smelltu hér.

 

mánudagur 16. ágúst 2010

Á morgun, þriðjudaginn 17. ágúst, verður skrifstofan lokuð.

Ég vona að þetta valdi ekki óþægindum.  Verð mættur kl 13:00 á fimmtudag. 

fimmtudagur 6. maí 2010

Nýlega stóðu atburðafyrirtækið Bravó og Bylgjan fyrir Latabæjarhátíð í Laugardalshöllinni. Ákveðið var að frímiðar rynnu til einhvers góðs málefnis, og Hemmi Gunn var ekki í vafa: Einstök börn urðu fyrir valinu. 

þriðjudagur 27. apríl 2010

Einstök börn og Rauði krossinn standa fyrir námsskeiði í skyndihjálp mánudaginn 3. mai.

Námsskeiðið verður haldið að Háaleitisbraut 13, í salnum á 4. hæð, og stendur frá kl 18:00 til 22:00. 

miðvikudagur 21. apríl 2010

 

Veitingahúsið Saffran, sem er bæði í Glæsibæ og að Dalvegi 4, Kópavogi, átti eins árs afmæli 16. mars s.l.

Eins og höfðingja er siður héldu þeir afmælisveislu í tvo daga.  Eigendur Saffran ákváðu að Einstök börn fengju ákveðna upphæð af hverri seldri máltíð þessa tvo afmælisdaga.  Nú er dágóð upphæð kominn inn á reikning Einstakra barna vegna þessa átaks, og það er greinilegt að þarna er mikið að gera.

miðvikudagur 7. október 2009

 Auður Hansen, sem er einn stofnfélaga Einstakra barna, gaf nýlega út ljóðabók sem heitir Hjartans rót.  Bókin lýsir vel þeirri gleði, og stundum sorg, sem fylgir móðurhlutverkinu.

Söluverð bókarinnar er 1.500 krónur, og það rennur óskipt til Einstakra barna.  Þar með rætist gamall draumur Auðar; að styrkja myndarlega félagið sem stóð við bakið á henni á erfiðum tímum.

Bókin er til sölu á skrifstofu Einstakra barna, og innan örfárra daga verður hún komin á sölustaði N1 um allt land.

þriðjudagur 26. maí 2009

Ágætu félagsmenn. 

Skrifstofa Einstakra barna verður lokuð frá og með deginum í dag til 4. júní.

Við vonum að þetta valdi ekki óþægindum

 

Bestu kveðjur

Hörður 

Dagbók
12. maí 2009
Sumarhátíð 2009
29. apríl 2008
Sumarhátíð 2008
Ýmislegt
Þessi vefur er gjöf frá Nepal